Hanna Jónsdóttir fæddist 12. mars 1955. Hún lést 8. maí 2024.

Blóðmóðir hennar var Áslaug Jóhannsdóttir, f. 16. febrúar 1938, d. 12. júní 2024. Fósturforeldrar hennar voru Bára Jóhannsdóttir, f. 12. júní 1921, d. 18. júní 1996, og Jón Guðnason, f. 7. mars 1947, d. 9. desember 2011.

Útför fer fram frá kapellunni í Akureyrarkirkju í dag, 12. ágúst 2024, kl. 14.30.

Mig langar til að skrifa um þig nokkur orð. Þú varst yndisleg persóna. Þú varst á öðru ári þegar þú fórst til Reykjavíkur sem dóttir Báru, hálfsystir okkar Ásu, og Jóns Guðnasonar og söknuðurinn var mikill en það var ekkert annað í boði, ekkert fæðingarorlof né aðrir peningar. Foreldrar mínir orðnir sjúklingar og áttu heima í sveit, Ása var þá að vinna á sjúkrahúsinu á Akureyri. Seinna fórum við Ása til Reykjavíkur að vinna, þá

...