![Skólastarf Helgi telur samræmt námsmat mikilvægt en að ófaglegt sé að bera grunnskóla saman.](/myndir/gagnasafn/2024/08/12/88135c26-582e-44f0-9d2e-afba3b7ef933.jpg)
Skólastarf Helgi telur samræmt námsmat mikilvægt en að ófaglegt sé að bera grunnskóla saman.
— Morgunblaðið/Hari
Í brennidepli
Hólmfríður María Ragnhildard.
hmr@mbl.is
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar stefnir á að byrja í þessum mánuði að undirbúa svokallaða innleiðingaráætlun menntastefnu borgarinnar fyrir árin 2025 til 2027.
Með hluta áætlunarinnar er ætlunin að bregðast við niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem nemendur tóku árið 2022, en niðurstöðurnar voru birtar í desember á síðasta ári. Ekkert land hrundi þar meira á milli kannana en Ísland, sem mældist einnig næstlægst allra Evrópuríkja sem tóku þátt. Hrunið var þó aðeins hluti af lengri þróun, þar sem frammistöðu íslenskra grunnskólabarna hefur sífellt hrakað á mælikvarða PISA undanfarin ár.
Sviðsstjórinn Helgi Grímsson segir að stefnt sé að því að
...