Félagið Heklubyggð áformar mikla uppbyggingu við Skíðaskálann í Hveradölum. Samhliða þessu áformar félagið Hveradalir að byggja baðhús og baðlón í Stóradal, skammt frá Skíðaskálanum, en fjallað var um þessi verkefni í Morgunblaðinu 1. og 3. ágúst.
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Hveradala ehf., sagði lónið í hönnunarferli en að vonandi yrði hægt að greina frá tíðindum í haust. Rætt er um að nýta skiljuvatn frá Hellisheiðarvirkjun, eftir rafmagns- og varmaframleiðslu, í baðlónið [skiljuvatn var nefnt affallsvatn í fyrri grein].
Sævar Freyr segir nýtt minnisblað rannsóknar- og nýsköpunarsviðs Orkuveitunnar benda til að raunhæft sé að nýta skiljuvatn frá Hellisheiðarvirkjun. Ráðist hafi verið í þetta rannsóknarverkefni vegna áhuga aðila á að opna baðlón á svæðinu.
Baðlónið yrði hluti
...