Aron Þórður Albertsson reyndist hetja KR þegar liðið hafði betur gegn FH í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Meistaravöllum í Vesturbænum í gær. Leiknum lauk með sigri KR, 1:0, en Aron Þórður skoraði sigurmarkið á 45
![Umkringdur KR-ingurinn Luke Rae sækir að Hafnfirðingum í Vesturbænum í gær en hann lagði upp sigurmark leiksins fyrir Aron Þórð Albertsson.](/myndir/gagnasafn/2024/08/13/06ce15bd-9c53-43dd-afed-cb3b4153da5f.jpg)
Umkringdur KR-ingurinn Luke Rae sækir að Hafnfirðingum í Vesturbænum í gær en hann lagði upp sigurmark leiksins fyrir Aron Þórð Albertsson.
— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Besta deildin
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Aron Þórður Albertsson reyndist hetja KR þegar liðið hafði betur gegn FH í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Meistaravöllum í Vesturbænum í gær.
Leiknum lauk með sigri KR, 1:0, en Aron Þórður skoraði sigurmarkið á 45. mínútu eftir laglegan undirbúning Lukes Raes. Aron Þórður fór í þríhyrningsspil við Rae sem átti svo sendingu fyrir markið. Aron Þórður stýrði svo boltanum snyrtilega í markið með viðstöðulausu skoti af stuttu færi og reyndist það sigurmark leiksins.
Með sigrinum fór KR upp í 18 stig og er nú fjórum stigum frá fallsæti í níunda sætinu. FH er áfram í fimmta sætinu með 28 stig, 12 stigum minna en topplið Víkings úr
...