![Rannsókn Fornleifafræðingarnir við uppgraftrarsvæðið í Firði. Landnámsbyggð inni í miðjum kaupstaðnum.](/myndir/gagnasafn/2024/08/13/6d19e10c-8959-4467-9e61-2bf4846cdffd.jpg)
Rannsókn Fornleifafræðingarnir við uppgraftrarsvæðið í Firði. Landnámsbyggð inni í miðjum kaupstaðnum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Um 600 gripir, litlir sem stórir, hafa í sumar fundist í fornleifarannsóknum í Firði í Seyðisfirði. Saman hafa á síðustu árum verið skráðir um 8.000 munir úr moldinni í þessum rannsóknum eystra sem nú er að ljúka, eftir fimm sumra starf.
„Ég hef ekki áður tekið þátt í uppgreftri þar sem fundist hefur slíkur fjöldi muna, lítilla sem stórra, eins og hér er raunin frá tímabilinu 940-1100. Þetta er allt mjög merkilegt. Síðast fundum við
...