Valur hefur kallað knattspyrnumanninn Orra Hrafn Kjartansson aftur til félagsins en hann hafði verið á láni hjá uppeldisfélaginu Fylki í sumar. Orri Hrafn hefur verið að glíma við meiðsli sem og veikindi undanfarna mánuði en er kominn með…
![Hlíðarendi Orri Hrafn hefur verið kallaður aftur til Vals frá Fylki.](/myndir/gagnasafn/2024/08/13/77d5b6d8-6f3c-4209-a43d-3c73a69a7c90.jpg)
Hlíðarendi Orri Hrafn hefur verið kallaður aftur til Vals frá Fylki.
— Ljósmynd/Kristinn Steinn
Valur hefur kallað knattspyrnumanninn Orra Hrafn Kjartansson aftur til félagsins en hann hafði verið á láni hjá uppeldisfélaginu Fylki í sumar. Orri Hrafn hefur verið að glíma við meiðsli sem og veikindi undanfarna mánuði en er kominn með leikheimild hjá Val og gæti tekið þátt í stórleiknum gegn Breiðabliki næsta fimmtudagskvöld. Orri gekk til liðs við Val í desember 2021 fyrir háar upphæðir eftir frábært tímabil með Fylki.