Dúóið Marey kemur fram í Mengi í kvöld kl. 20, en húsið verður opnað kl. 19.30. „Systurnar Lilja María og Anna Sóley Ásmundsdætur skipa dúóið Marey sem blandar tilraunakenndri spunatónlist við rafhljóð og ljóðalestur. Áhrifa gætir frá samtíma klassík, hljóðlist og alþýðutónlist. Lilja María spilar á hljóðskúlptúrinn Huldu, hljóðfæri sem hún hannaði sjálf, og býr til hljóðmyndir. Anna Sóley syngur, spilar á fiðlu og hannar hljóðmyndir,“ segir í viðburðarkynningu.