Fjórar steypireyðar sem sáust á Eyjafirði í gær glöddu svo sannarlega hvalaskoðendur um borð í skipum hvalaskoðunarfyrirtækisins Arctic Sea Tours á Dalvík. Freyr Antonsson, sem rekur Arctic Sea Tours, segir steypi­reyðar ekki oft sjást, hvað þá…
— Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson

Fjórar steypireyðar sem sáust á Eyjafirði í gær glöddu svo sannarlega hvalaskoðendur um borð í skipum hvalaskoðunarfyrirtækisins Arctic Sea Tours á Dalvík.

Freyr Antonsson, sem rekur Arctic Sea Tours, segir steypi­reyðar ekki oft sjást, hvað þá fjórar í einu, yfirleitt sé verið að sýna fólki hnúfubaka og hrefn­ur. „Steypireyðar sjást í einu til fimm prósentum af ferðunum okkar en hnúfubakurinn í 99 prósentum ferða,“ segir Freyr en á leiðinni frá Hjalteyri að Hrísey í gær sáust einnig hnúfubakar.

Hann segir einn skipstjórann, sem hefur verið lengi í bransanum, hafa sagt við sig í gær að hann hafi verið með glaðasta hóp sem hann hafi nokkru sinni farið með.

„Hann var með 60 manns og þau nánast öll föðmuðu skipstjórann þegar þau sáu steypireyðarnar. Einn áttræður sagði við hann að hann hefði aldrei átt von á því að fá að upplifa að sjá steypireyði.“ gummih@mbl.is