Ólafur Ólafsson fæddist í Reykjavík 5. júlí 1959. Hann lést eftir stutt veikindi í faðmi fjölskyldunnar 30. júlí 2024.

Foreldrar Ólafs voru Ólafur Ólafsson, d. 2004, og Arndís Guðmundsdóttir, d. 2001. Systkini Ólafs voru Helga, maki Pétur Örn Jónsson og eiga þau tvö börn. Jón Finnur, d. 2021, maki Þóranna Ingólfsdóttir og eiga þau fjögur börn. Kristín Guðrún, maki Guðni Birgir Svavarsson, d. 2015, og eiga þau þrjú börn.

Ólafur bjó í foreldrahúsum til ársins 2002 og flutti þá í eitt ár til bróður síns og mágkonu á Selfossi. Árið 2003 flutti hann á Skálatún í Mosfellsbæ og bjó fyrstu árin í Fögruhlíð. Árið 2009 fékk hann úthlutaða eigin íbúð í íbúðarkjarnanum Vesturhlíð, þar sem hann naut sín vel og eignaðist marga góða vini.

Útför Ólafs fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 14. ágúst 2024, og

...