Viðskiptaráð hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu upplýsingabeiðni um niðurstöður námsmats í grunnskólum.
Í beiðninni óskar Viðskiptaráð eftir einkunnum úr alþjóðlega könnunarprófinu PISA, niðurstöðum samræmdra könnunarprófa og skólaeinkunnum sundurgreindum eftir grunnskólum.
Frá þessu greinir ráðið í tilkynningu og segir bréfið sent vegna óbreyttra áforma ráðuneytisins og undirstofnana þess um að birta ekki niðurstöður samræmds námsmats sundurgreindar eftir skólum.
Hávær umræða um árangur íslenska grunnskólakerfisins hefur sprottið upp í kjölfar ítarlegrar umfjöllunar mbl.is og Morgunblaðsins undanfarnar vikur.
Bent er á að sviðsstjóri matssviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hafi sagt að í nýju samræmdu námsmati, svokölluðum matsferli, verði niðurstöður eftir skólum ekki gerðar opinberar þar sem gæta verði að persónuvernd.
„Þessi
...