Vitnaleiðslur héldu áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í máli gegn Pétri Jökli Jónassyni. Er hann sakaður um tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með hlutdeild í stóra kókaínmálinu svokallaða.

Er Pétur Jökull talinn vera skipuleggjandi í málinu sem stýrði Daða Björnssyni, en enginn höfuðpaur. Daði hlaut sex ára og sex mánaða fangelsisdóm fyrir aðild sína að málinu í maí í fyrra.

...