Sigríður Margrét Einarsdóttir hársnyrtimeistari fæddist 13. október 1972. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 5. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Einar Þorgeirsson rafvirkjameistari, f. 13.12. 1948, d. 3.4. 1990, og Helga Bjarnadóttir hársnyrtimeistari, f. 17.3. 1951, d. 24.6. 2009.

Bræður hennar eru Einar Geir Einarsson, f. 20.9. 1974, og Bjarni Þór Einarsson, f. 20.9. 1974. Systir hennar er Erla Rut Eggertsdóttir, f. 17.7. 1994.

Einar Geir á börnin Rebekku Lind, f. 20.6. 2005, og Mána Geir, f. 27.3. 2015.

Bjarni Þór á börnin Aron Þór, f. 18.2. 2008, og Helgu, f. 22.11. 2010, með Guðlaugu Jónsdóttur, f. 7.10. 1977.

Erla Rut á börnin Óliver Leó, f. 2.8. 2018, og Óðin Eggert,

...