— Morgunblaðið/Eggert

Aðsókn í parísarhjólið við Reykjavíkurhöfn hefur kannski ekki náð að mæta væntingum og mætti mögulega skrifa það að einhverju leyti á hina fáu sólardaga sem landinn hefur fengið síðustu vikur. Það stoppar hins vegar ekki alla frá því að mæta og njóta. Parísarhjólið, sem bauð landsmönnum fyrst að fá sér snúning á 17. júní, verður opið til 15. september.