Þjálfari Arnar Gunnlaugsson fékk þriggja leikja bann.
Þjálfari Arnar Gunnlaugsson fékk þriggja leikja bann.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í knattspyrnu, er kominn í þriggja leikja bann fyrir hegðun sína í leik gegn Vestra í Bestu deildinni síðasta sunnudag. Leiknum lauk með jafntefli, 1:1, en Arnar gjörsamlega trompaðist eftir að Vestri jafnaði metin. Þetta var annað rauða spjald Arnars á tímabilinu en hann fær aukaleik í bann vegna framkomu sinnar við fjórða dómarann á vellinum. Víkingur er í toppsæti deildarinnar.