Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handknattleik, er fullur tilhlökkunar fyrir komandi keppnistímabili í Póllandi en hann gekk til liðs við pólsku meistarana í Wisla Plock í júní í sumar. „Ég er virkilega spenntur að hefja leik og get satt best að segja ekki beðið eftir fyrsta leiknum,“ sagði Viktor Gísli í samtali við Morgunblaðið. »23