Bandaríska leikkonan Blake Lively tók sig vel út á rauða dreglinum á heiðurssýningu á kvikmyndinni It Ends With Us í London um helgina.Myndin er sú vinsælasta í bíóhúsum hér á landi um þessar mundir sem og víða um heim
— AFP/Justin Tallis

Bandaríska leikkonan Blake Lively tók sig vel út á rauða dreglinum á heiðurssýningu á kvikmyndinni It Ends With Us í London um helgina.Myndin er sú vinsælasta í bíóhúsum hér á landi um þessar mundir sem og víða um heim. Hún er byggð á samnefndri metsölubók Colleen Hoover sem kom út í íslenskri þýðingu árið 2022 undir titlinum Þessu lýkur hér. Bókin hefur sérstaklega verið vinsæl meðal ungra lesenda á samfélagsmiðlum á borð við Goodreads og TikTok en hún hefur þó einnig hlotið harða gagnrýni. Myndin er heldur ekki óumdeild en sem stendur er hún með 58% í einkunn á vefnum Rotten Tomatoes sem tekur saman gagnrýni fjölda fjölmiðla.