![Stjórinn Katelin Parsons ritstýrir gagnagrunninum Handrit íslenskra vesturfara hjá Árnastofnun og er víðlesin í handritafræðum. Hún er líka með doktorsgráðu í íslenskum bókmenntum.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/4d9a2c0a-edf3-40d8-be6d-0ed0a648b7ba.jpg)
Viðtal
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Við getum staðsett handritið til Vesturlands, á saurblaðinu fremst stendur „Jón Sigurðsson sýslumaður á þessa merkilegu bók í láni hjá Sigurði Björnssyni Anno 1710“,“ segir Katelin Marit Parsons, ritstjóri gagnagrunnsins Handrit íslenskra vesturfara sem stofnun Árna Magnússonar heldur úti.
Samtalið snýst um íslenskt handrit ársett 1693 sem fannst í kjallara í kanadísku borginni Kingston í Ontario við búferlaflutninga í fyrrasumar. Af fundi þessum var ítarlega sagt á mbl.is í byrjaðan júlí og þar rætt við Gabriellu Dee, en hana og Stephen mann hennar mætti með nokkrum sanni kalla verndara handritsins þar sem þau sáu í hendi sér að hér hlytu einhver menningarverðmæti að vera fundin, þótt ekki þekktu
...