Handknattleiksmaðurinn Ásbjörn Friðriksson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við FH. Auk þess að leika áfram með liðinu verður hann aðstoðarþjálfari Sigursteins Arndal þjálfara FH líkt og undanfarin ár

Handknattleiksmaðurinn Ásbjörn Friðriksson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við FH. Auk þess að leika áfram með liðinu verður hann aðstoðarþjálfari Sigursteins Arndal þjálfara FH líkt og undanfarin ár. Ásbjörn er 36 ára gamall og á að baki 465 leiki fyrir FH. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu í vor.

Ólafur Brim Stefánsson er farinn frá Kúveit og til slóvenska handboltaliðsins Povazska Bystrica frá Slóvakíu. Ólafur Brim skrifar undir eins árs samning við slóvakíska félagið. Hann fór óvænt út til Kúveit frá Gróttu fyrir rúmu ári.

Knattspyrnumennirnir Matthijis de Ligt og Noussair Mazaroui eru gengnir til liðs við Manchester United en þeir koma báðir frá Bayern München. Þeir léku báðir undir stjórn Eriks ten Hag, knattspyrnustjóra United, hjá Ajax

...