![](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/cc46c90b-0834-4ea2-bfa7-a86c41a00f7b.jpg)
— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa vafalaust margir tekið eftir tíðum komum einkaþotna til Reykjavíkurflugvallar í sumar. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá vellinum um miðjan dag í gær stóðu þar alls átta einkaþotur og var ein þeirra nýlent og á leið í stæði. Þessar fjórar sem hér sjást stóðu þétt saman á stæði við gamla Loftleiðahótelið. Flugáhugamenn gleðjast vafalaust yfir heimsóknunum enda eru þoturnar af ýmsum gerðum og margar þeirra afar glæsilegar að sjá.