Holland Helgi Fróði Ingason er farinn frá Stjörnunni.
Holland Helgi Fróði Ingason er farinn frá Stjörnunni. — Ljósmynd/Guðmundur Bjarki

Knattspyrnumaðurinn Helgi Fróði Ingason er genginn til liðs við hollenska félagið Helmond Sport frá uppeldisfélagi sínu Stjörnunni. Helgi Fróði er 18 ára gamall en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 30 leiki fyrir Stjörnuna í Bestu deildinni og skorað í þeim tvö mörk, bæði í sumar. Helmond leikur í B-deild í Hollandi og skrifaði Helgi Fróði undir fjögurra ára samning sem rennur út sumarið 2028.