Heildarkostnaður vegna ýmissar þjónustu við hælisleitendur frá og með 2018 til september 2023, þ.e. í ríflega hálft sjötta ár, nam alls 20,6 milljörðum króna en þar af var kostnaðurinn fyrstu níu mánuði síðastliðins árs 6.225 milljónir
Mótmæli Hælisleitendur hafa ítrekað mótmælt illri meðferð.
Mótmæli Hælisleitendur hafa ítrekað mótmælt illri meðferð. — Morgunblaðið/Eggert

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

Heildarkostnaður vegna ýmissar þjónustu við hælisleitendur frá og með 2018 til september 2023, þ.e. í ríflega hálft sjötta ár, nam alls 20,6 milljörðum króna en þar af var kostnaðurinn fyrstu níu mánuði síðastliðins árs 6.225 milljónir.

Þetta kemur fram í svari Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni alþingismanni um kostnað vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Birgir spurði um hver árleg útgjöld ríkissjóðs hefðu verið vegna þessa frá 1. janúar 2018 til 1. október 2023.

Af svari ráðherrans má ráða að framangreindur kostnaður hafi hækkað stórlega á árinu 2023 frá fyrri árum, enda þótt aðeins hafi verið litið til fyrstu

...