„Þetta er talsverður hraði og við teljum að þetta segi okkur að kvika sé mjög líklega að safnast fyrir á um þriggja kílómetra dýpi norðvestan við Öskjuvatn,“ sagði Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu…
![Eldstöð Askja er að vakna á ný.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/61876440-d720-4896-ae52-de6643b2abb2.jpg)
Eldstöð Askja er að vakna á ný.
„Þetta er talsverður hraði og við teljum að þetta segi okkur að kvika sé mjög líklega að safnast fyrir á um þriggja kílómetra dýpi norðvestan við Öskjuvatn,“ sagði Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands, við mbl.is í gær en hann telur að landris í Öskju bendi til þess að kvika sé að safnast þar undir.
Benedikt segir að hægt hafi á landrisi í Öskju fyrir um ári en haldið nokkuð stöðugt áfram síðan þá. Ekki séu núna merki um miklar breytingar í skjálftavirkni.