![Fjölskyldan Haukur Þór og Fjóla María ásamt sonunum Breka Hilmari, Hauki Ágústi og Huga Steini.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/bc9f603d-e474-46da-aa56-b0af833aea72.jpg)
Haukur Þór Hauksson fæddist 15. ágúst 1974 í Reykjavík.
„Ég ólst fyrstu árin upp í Krummahólum í Breiðholti þar til foreldrar mínir byggðu hús í Þernunesi í Garðabæ árið 1979. Þangað fluttum við fjölskyldan þegar ég var sex ára gamall. Þá hófst skólaganga í Flataskóla og síðar í Garðaskóla þar sem ég kynntist sumum af mínum bestu vinum í dag. Ég lærði einnig á píanó í nokkur ár í Tónlistarskóla Garðabæjar. Eftir gagnfræðaskóla fór ég í Verzlunarskóla Íslands, varð stúdent þaðan og eignaðist frábæra vini. Gamli bekkurinn minn 6.X hefur haldið saman í gegnum tíðina.“
Eftir Verzlunarskólann fór Haukur í Háskóla Íslands og útskrifaðist með cand. oecon. af reikningshalds- og endurskoðunarsviði. „Að loknu háskólanámi hef ég svo klárað alls kyns próf og vottanir, t.d. löggildingu í verðbréfamiðlun og alþjóðlegt próf í gjaldeyris-
...