Áslaug Jónína Sverrisdóttir (Stella) fæddist 24. september 1936 á Eskifirði. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Grund 30. júlí 2024.

Foreldrar hennar voru Sigfríð Sigurjónsdóttir verkakona, f. 6. mars 1914 á Eskifirði, d. 25. apríl 1997, og Sverrir Matthíasson athafnamaður, f. 14. apríl 1912 á Móum á Kjalarnesi, d. 2. maí 1985.

Hálfsystkini sammæðra: Stefán Kristinsson, f. 14. apríl 1940, d. 7. júlí 1963, Sigríður Kristinsdóttir f. 13. júlí 1943, d. 23. júní 2017, og Guðrún Kristinsdóttir, f. 4. desember 1945. Hálfbræður samfeðra: Thor, f. 3. september 1944, og Freyr, f. 14. ágúst 1948, d. 1. mars 1963.

Hinn 27. ágúst 1962 eignaðist Áslaug soninn Sigurjón Birgi Sigurðsson (Sjón) með Sigurði Ásgrími Geirdal Gíslasyni bæjarstjóra, f. 4. júlí 1939, d. 28. nóvember 2004. Maki Sigurjóns Birgis er

...