Í fyrsta skipti eftir næstum tvo mánuði af fótbolta og þar á eftir Ólympíuleikum þurfti undirrituð að opna streymisveiturnar á ný og velja sér efni sjálf. Þar er hægt að eyða mörgum klukkustundum af lífi sínu í að velja sjónvarpsefni og hefur…
United Þetta verður þriðja tímabil Ten Hag.
United Þetta verður þriðja tímabil Ten Hag. — AFP

Herdís Tómasdóttir

Í fyrsta skipti eftir næstum tvo mánuði af fótbolta og þar á eftir Ólympíuleikum þurfti undirrituð að opna streymisveiturnar á ný og velja sér efni sjálf. Þar er hægt að eyða mörgum klukkustundum af lífi sínu í að velja sjónvarpsefni og hefur undirrituð áskrift að óverjandi mörgum streymisveitum sem engin virðist hafa neitt frumlegt eða nýtt upp á að bjóða í þeirri gúrkutíð sem ágústmánuður er. En við verðum ekki án íþrótta lengi þar sem næst á dagskrá er enska úrvalsdeildin í fótbolta karla sem hefst í kvöld með leik Manchester United gegn Fulham á Old Trafford.

Undirrituð er harður stuðningsmaður United og kennir föður sínum alfarið um þá bölvun. Í staðinn fyrir að halda með liði í Lundúnum eða á suðurhluta Englands þarf undirrituð að fara til Manchester, þar sem ekkert er að gerast, til þess

...