Anton Ari Einarsson átti frábæran leik í marki Breiðabliks þegar liðið heimsótti Val á Hlíðarenda í frestuðum leik úr 16. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Hlíðarenda í gær en leiknum lauk með sigri Breiðabliks, 2:0.
Valsmenn fengu hættulegri færi í fyrri hálfleik en Damir Muminovic kom Blikum yfir á 38. mínútu af stuttu færi úr teignum eftir hornspyrnu Höskuldar Gunnlaugssonar.
Jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik en á 67. mínútu slapp Ísak Snær Þorvaldsson í gegn um vörn Valsmanna eftir vandræðagang í öftustu víglínu. Ísak gerði engin mistök og skoraði af öryggi fram hjá Ögmundi Kristinssyni í marki Vals.
Með sigrinum minnkaði Breiðablik forskot Víkings úr Reykjavík í einungis þrjú stig á toppi deildarinnar en Víkingar eru með 40 stig og
...