Þórunn Melsteð fæddist í Reykjavík 7. febrúar 1934. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 24. júlí 2024.

Foreldrar Þórunnar voru Soffía Bjarnadóttir Melsteð, f. í Framnesi á Skeiðum 15.9. 1905, d. 19.3. 1993, og Haraldur Alfreð Hólm Eyþórsson, f. 13.3. 1910, d. 29.7. 1980. Systir Þórunnar var Ragnheiður Haraldsdóttir, f. 7.5. 1931, d. 27.7. 2020. Maki hennar var Haraldur Bjarnason. Þau eignuðust sjö börn.

Hinn 5.6. 1954 giftist Þórunn Ólafi Herði Sigtryggssyni, f. 17.3. 1934, d. 24.10. 2017. Þau skildu árið 1962. Þórunn og Ólafur Hörður eignuðust tvær dætur, þær eru: 1) Erla Melsteð, f. 1.7. 1958, d. 20.2. 2017, eiginmaður hennar var Árni Árnason, f. 30.8. 1957. Börn Erlu: Soffía Melsteð Eyjólfsdóttir og Brynjar Söebeck Melsteð Aðalsteinsson. 2) Soffía Melsteð, f. 27.3. 1960, eiginmaður hennar er Jóngeir Hjörvar Hlinason hagfræðingur, f.

...