„Sjálfsmildi er mikilvægur þáttur í að lifa hamingjuríku, friðsælu lífi.“ Ekki skal það rengt. En það sem að okkur snýr hér í Málinu er að mildi (blíða, miskunnsemi) er kvenkyns og sjálfsmildi þá líka

„Sjálfsmildi er mikilvægur þáttur í að lifa hamingjuríku, friðsælu lífi.“ Ekki skal það rengt. En það sem að okkur snýr hér í Málinu er að mildi (blíða, miskunnsemi) er kvenkyns og sjálfsmildi þá líka. Þetta er nefnt af því að við ber að talað sé um „mildið“ („Mikið mildi“ að ekki fór verr) og „sjálfsmildið“ sömuleiðis.