Kópavogur Daminir Muminovic hefur leikið með Blikum frá 2014.
Kópavogur Daminir Muminovic hefur leikið með Blikum frá 2014. — Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnumaðurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út keppnistímabilið 2025.

Damir, sem er 34 ára gamall miðvörður, er uppalinn hjá HK en hefur leikið með Breiðabliki frá 2014. Alls á hann að baki 260 leiki í efstu deild fyrir HK, Víking úr Ólafsvík og Breiðablik. Þá á hann að baki sex A-landsleiki. Aðeins Andri Rafn Yeoman hefur spilað fleiri leiki fyrir Kópavogsliðið en Damir.