Það bar til tíðinda að leitað var í bát á Höfn, en ætluð fíkniefni voru að líkindum sandur, samkvæmt fréttum. Jón Jens Kristjánsson kastaði fram: Er farið smáa flaut við land og flutti með í pokum sand var stefnt þar stórum hóp laganna varða sem…
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Það bar til tíðinda að leitað var í bát á Höfn, en ætluð fíkniefni voru að líkindum sandur, samkvæmt fréttum. Jón Jens Kristjánsson kastaði fram:
Er farið smáa flaut við land
og flutti með í pokum sand
var stefnt þar stórum hóp
laganna varða sem leita tók
og lýsti í sérhvert horn og krók
og gáði í föls og gróp
svo þarna umbylt öllu var
þá enginn sást við rannsókn spar
og hífðu sekk á handvagn þar
er hugðu vera dóp.
Jóhannes Geir Einarsson bætti við:
Lögreglunnar heljar hóp
helst þótti aukast vandinn
Reyndar eftir að rótsterkt dóp
rann bara út í sandinn.
¶Nú er Trump í