Þórunn Héðinsdóttir var fædd 8. nóvember 1933 í Héðinshúsi á Húsavík. Hún lést 3. ágúst 2024 á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík.

Hún var þriðja yngst af níu systkinum, eldri voru Kristbjörg, Maríus, Jón Ármann, Pálmi, Guðrún og Helgi, en yngstir eru Benedikt og Sigurður sem ásamt Helga lifa systkini sín. Foreldrar Þórunnar voru Héðinn Maríusson og Helga Jónsdóttir.

Þórunn var gift Kjartani Guðjónssyni, f. 2. júní 1935. Börn þeirra eru: Guðjón, kvæntur Kolbrúnu Davíðsdóttur, þau eiga þrjár dætur og þrjú barnabörn. Unnur, maki hennar er Torfi Aðalsteinsson, börn þeirra eru fjögur og Torfi á eina dóttur úr fyrra sambandi. Unnur og Torfi eiga níu barnabörn. Sigrún Helga á tvö börn með fyrrverandi manni sínum, Jóhannesi Sigmundssyni, og eitt barnabarn, unnusti hennar er Sigurgeir Höskuldsson. Yngstur er Héðinn Mari, hann á þrjú börn

...