Björn Ingason fæddist á Neðri-Dálksstöðum á Svalbarðsströnd 24. október 1949. Hann lést á heimili sínu 6. ágúst 2024.

Foreldrar hans voru Ingi Þór Ingimarsson, f. 23. desember 1925, d. 9. september 2011, og Kristjana Ingibjörg Halldórsdóttir, f. 11. nóvember 1930, d. 10. nóvember 1975. Systkini Björns eru: Ómar Þór, f. 9. mars 1953; Inga María, f. 17. júní 1955; Hanna Dóra, f. 26. maí 1960; Hulda Hrönn, f. 15. desember 1969.

Björn giftist 24. október 1981 Kristínu Helgu Harðardóttur, f. 24. september 1958. Foreldrar hennar voru Hörður Þorsteinsson, f. 18. mars 1930, d. 14. maí 1999, og Þórgunnur Inga Sigurgeirsdóttir, f. 25. október 1931, d. 21. desember 2020.

Saman eiga þau Bjössi og Helga þrjú börn, þau eru: 1) Jakob, f. 15. júlí 1977, giftur Hörpu Eyfjörð Helgadóttur, f. 22. september 1979,

...