Laugarásbíó, Sambíóin og Smárabíó It Ends with Us / Þessu lýkur hér ★★★½· Leikstjórn: Justin Baldoni. Handrit: Christy Hall. Aðalleikarar: Blake Lively, Justin Baldoni, Jenny Slate, Alex Neustaedter, Isabela Ferrer, Amy Morton og Brandon Sklenar. Bandaríkin, 2024. 130 mín.
Ástarsaga? „Hér er á ferðinni falleg og erfið saga um heimilisofbeldi en líka ástina,“ segir gagnrýnandi.
Ástarsaga? „Hér er á ferðinni falleg og erfið saga um heimilisofbeldi en líka ástina,“ segir gagnrýnandi.

Kvikmyndir

Jóna Gréta

Hilmarsdóttir

Kvikmyndin Þessu lýkur hér er byggð á samnefndri bók eftir rithöfundinn Colleen Hoover og segir frá ungu konunni Lily Bloom (Blake Lively) sem er að opna eigin blómabúð í Boston en það hefur verið langþráður draumur. Eitt kvöldið hittir hún taugaskurðlækninn Ryle Kincaid (Justin Baldoni) sem reynist vera bróðir bestu vinkonu hennar og samstarfskonu, Allysu (Jenny Slate). Lily Bloom telur sig hafa fundið ástina en hægt og rólega kemur ofbeldishegðun Ryle í ljós. Lily óttast að hún sé að verða eins og móðir sín sem skildi aldrei við ofbeldisfullan föður hennar. Til að flækja málin enn frekar, kemur gamall kærasti og fyrsta ástin hennar, Atlas Corrigan (Brandon Sklenar), óvænt aftur inn í líf hennar.

Það er

...