Tommy Fury er talinn hafa ítrekað haldið framhjá Molly-Mae Hague, með ótal konum.
Tommy Fury er talinn hafa ítrekað haldið framhjá Molly-Mae Hague, með ótal konum. — Ljósmynd/Instagram

Sambandsslit Stjörnuparið Tommy Fury og Molly-Mae Hague tilkynnti að hafa slitið trúlofun sinni á Instagram í vikunni. Parið kynntist fyrir fimm árum í bresku raunveruleikaþáttunum Love Island þar sem þau fundu ástina og eiga þau saman eins árs gamla dóttur. Ýmsar getgátur hafa farið á flug um ástæðu sambandsslitanna og snúa flestar um mögulegt framhjáhald Furys. Sögusagnir um sambandsslitin fóru fyrst á kreik fyrir ári þegar Fury sást dansa við aðra konu á skemmtistað án trúlofunarhrings.