Ítalska knattspyrnufélagið Fiorentina staðfesti í gær komu Alberts Guðmundssonar til félagsins. Kemur hann til Fiorentina að láni frá Genoa, en bæði lið leika í ítölsku A-deildinni. Fiorentina greiðir átta milljónir evra fyrir lánið og getur síðan…
Flórens Albert Guðmundsson er orðinn leikmaður Fiorentina.
Flórens Albert Guðmundsson er orðinn leikmaður Fiorentina. — Ljósmynd/Fiorentina

Ítalska knattspyrnufélagið Fiorentina staðfesti í gær komu Alberts Guðmundssonar til félagsins. Kemur hann til Fiorentina að láni frá Genoa, en bæði lið leika í ítölsku A-deildinni. Fiorentina greiðir átta milljónir evra fyrir lánið og getur síðan keypt íslenska sóknarmanninn á 20 milljónir til viðbótar eftir tímabilið. Fiorentina hafnaði í áttunda sæti A-deildarinnar á síðustu leiktíð og komst í úrslit Sambandsdeildarinnar.