Bryndís Jónsdóttir fæddist 27. desember 1924. Hún lést 28. júlí 2024. Útför Bryndísar fór fram 14. ágúst 2024.

Í dag kveð ég elsku ömmu mína. Amma var ekki allra en við vorum alltaf miklar vinkonur, kannski ekki nánar eins og flest fólk skilgreinir það, heldur nutum við nærverunnar án þess endilega að þurfa að segja margt.

Þegar amma var í góðu jafnvægi gat hún verið nokkuð yfirveguð og ég var og er það líka, þess vegna kannski áttum við svona vel saman. Og ég held að hún hafi alltaf kunnað að meta rólegheitin okkar.

Amma var orðin frekar gömul þegar ég kom í heiminn þar sem ég er langyngst, en hún hefur alla mína ævi verið svo skýr í kollinum og spræk alveg þangað til undir lokin. Alltaf að tala um ættina okkar og að hinir og þessir væru frændur okkar og frænkur. Hún var með þetta allt á hreinu og mundi allt.

...