Málum sem skotið hefur verið til úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum og tengjast rafhlaupahjólum hefur farið fjölgandi síðustu misseri. Þóra Hallgrímsdóttir, formaður nefndarinnar, segir álitamálin mismunandi en oft snúist þau um hvernig skilgreina eigi rafhlaupahjól

Egill Aaron Ægisson

egillaaron@mbl.is

Málum sem skotið hefur verið til úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum og tengjast rafhlaupahjólum hefur farið fjölgandi síðustu misseri.

Þóra Hallgrímsdóttir, formaður nefndarinnar, segir álitamálin mismunandi en oft snúist þau um hvernig skilgreina eigi rafhlaupahjól. Samkvæmt umferðarlögum tilheyra vélknúin hlaupahjól flokki reiðhjóla og getur það haft áhrif á niðurstöðu nefndarinnar þegar kemur að úrskurði um bætur vegna slysa.

Þá hafa mál sem tengjast háttsemi ökumanna hjólanna komið til kasta nefndarinnar og tryggingafélög hafa meðal annars neitað að greiða bætur vegna þess að ökumenn eru yngri en 18 ára og voru einnig með farþega á hjólinu. Úrskurðarnefndin bendir hins vegar á að í umferðarlögum og reglugerð sé ekki gerð krafa

...