Skáldsaga Hildar Knútsdóttur Myrkrið milli stjarnanna (2021) er efst á lista bandaríska bókasafnsvefsins LibraryReads yfir bestu bækurnar sem gefnar verða út þar í landi í september

Skáldsaga Hildar Knútsdóttur Myrkrið milli stjarnanna (2021) er efst á lista bandaríska bókasafnsvefsins LibraryReads yfir bestu bækurnar sem gefnar verða út þar í landi í september. Er hún væntanleg í enskri þýðingu Mary Robinette 3. september og kemur út hjá forlaginu Tor Publishing Group undir titlinum The Night Guest. Í umsögn segir: „Ef þú ert í stuði fyrir dásamlega truflandi bók, þá ættirðu að hafa þessa í huga. […] Unaðslega hrollvekjandi!“