„Það er ekki oft sem ég verð spennt þegar það er frægt fólk á Íslandi en ég varð spennt í gær,“ viðurkenndi Kristín Sif í Ísland vaknar í gærmorgun en hún var mjög nálægt því að bruna á Dalakofann í Þingeyjarsveit þar sem stórleikarinn Brad Pitt borðaði um helgina.

Þá var Kristín stödd í grennd við leikarann en hún segist hafa verið mikill aðdáandi kappans á unglingsaldri. Hún vísaði í frétt mbl.is þar sem birt var myndband af leikaranum að rúlla í hlaðið á mótorhjóli. „Ég var með plaköt á veggnum,“ sagði Kristín Sif við þá Bolla Má og Þór Bæring og ræddi við þá um leikarann myndarlega.

Nánar er fjallað um málið á K100.is