Ómar Aðalsteinsson fæddist í Reykjavík 11. febrúar 1952. Hann lést heima hjá sér 19. júlí 2024.

Foreldrar Ómars voru Aðalsteinn Guðmundsson vélstjóri og bílstjóri, f. á Ísafirði 15.10. 1920, d. 7.11. 1987, og Garða Jónsdóttir, f. á Ólafsfirði 5.5. 1922, d. 9.11. 2009. Systkini Ómars eru Erla, f. 7.7. 1945, og Hinrik, f. 15.5. 1950, d. 16.6. 2012.

Sonur Ómars er Garðar, f. 7.11. 1978.

Ómar var jarðsunginn í kyrrþey.

Ómar yngri bróðir minn lést 19. júlí, 72 ára. Seinni árin átti hann við heilsuleysi að stríða.

Nú þegar ég lít yfir farinn veg koma upp margar skemmtilegar minningar. Ég lenti oft í því að passa hann. Eftir kvöldmat fór ég með hann inn í rúm að svæfa hann. Oftar en ekki kom hann fram

...