Reyndur Gamla brýnið Jamie Vardy skoraði mark Leicester í gærkvöldi.
Reyndur Gamla brýnið Jamie Vardy skoraði mark Leicester í gærkvöldi. — AFP/Darren Staples

Nýliðar Leicester City og Tottenham Hotspur skildu jöfn, 1:1, þegar liðin áttust við í lokaleik 1. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í gærkvöld. Pedro Porro kom gestunum frá Tottenham í forystu á 29. mínútu með góðum skalla eftir sendingu James Maddison inn í vítateiginn. Jamie Vardy jafnaði hins vegar metin fyrir Leicester á 57. mínútu þegar hann skoraði með föstum skalla af stuttu færi eftir góða fyrirgjöf Abduls Fatawus frá hægri.