Jóhanna Soffía Sigurðardóttir fæddist 21. september 1929. Hún lést 18. júlí 2024. Útför fór fram 12. ágúst 2024.

Úlfur okkar minnist langömmu sinnar með mikilli hlýju. Hún langamma var svo góð kona, hún var alltaf svo góð við mig og góð við alla.

Það sem við hefðum gefið fyrir að amma hefði getað séð Elmar, litla langömmubarnið sitt, áður en hún kvaddi þennan heim. Hún sýndi óléttunni svo mikinn áhuga og var dugleg að spyrja hvernig ég hefði það og hvernig óléttan gengi. Amma og Elmar misstu hvort af öðru um einungis tvo daga en amma kvaddi um klukkan þrjú að nóttu þann 18. júlí og Elmar kom í heiminn þrjú að nóttu þann 20. júlí. Líf kviknar víst þegar það gamla slokknar. Við erum þó ósköp þakklát fyrir allan þann dýrmæta tíma sem við áttum saman og minningarnar sem við sköpuðum.

Góða ferð elsku

...