Knattspyrnumaðurinn Atli Barkarson er genginn til liðs við belgíska félagið Zulte Waregem, sem leikur í B-deildinni þar í landi. Skrifaði hann undir tveggja ára samning. Atli, sem er 23 ára gamall vinstri bakvörður, kemur frá danska…
Belgía Atli Barkarson samdi við Zulte Waregem til tveggja ára.
Belgía Atli Barkarson samdi við Zulte Waregem til tveggja ára. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Atli Barkarson er genginn til liðs við belgíska félagið Zulte Waregem, sem leikur í B-deildinni þar í landi. Skrifaði hann undir tveggja ára samning. Atli, sem er 23 ára gamall vinstri bakvörður, kemur frá danska úrvalsdeildarfélaginu SönderjyskE þar sem hann hefur leikið frá því í janúar árið 2022.

Atli er uppalinn hjá Völsungi á Húsavík en hefur einnig leikið með Víkingi úr Reykjavík hér á landi auk Fredrikstads í Noregi.