30 ára Villi, eins og hann er alltaf kallaður, ólst upp á Akureyri til tíu ára aldurs en síðan í Fossvogi í Reykjavík. Hann býr núna Kópavogsmegin í Fossvoginum. Hann er með BSc í viðskiptafræði úr Háskólanum í Reykjavík og MCF í fjármálum fyrirtækja, einnig úr HR. Hann er fjármálastjóri hjá uppsteypufyrirtækinu GR verk. Áhugamálin eru fótbolti, en Villi er mikill Víkingsmaður, og hann spilar mikið golf.


Fjölskylda Maki Villa er ­Stefanía Gunnarsdóttir, f. 1992, vinnur að markaðsmálum í Kviku banka. Dóttir þeirra er Bergdís María, f. 2024. Foreldrar Villa eru hjónin Kristín María Kjartansdóttir, f. 1961, og Ingólfur Hauksson, f. 1960. Þau eru búsett í Kópavogi.