Þetta er ekki geðslegt, langt því frá, en þó má finna dálitla von í ljótum heimi.
Tröll Gaby Hoffmann og Benedict Cumberbatch leika hjón í Eric, nýlegri kvikmynd streymisveitunnar Netflix.
Tröll Gaby Hoffmann og Benedict Cumberbatch leika hjón í Eric, nýlegri kvikmynd streymisveitunnar Netflix.

Af listum

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Eric nefnist þáttaröð á streymisveitunni Netflix sem vert er að gefa gaum þó svo hún sé ekki gallalaus, ekki frekar en flestar aðrar þáttaraðir veitunnar. Ber því þó að fagna þegar Netflix framleiðir sæmilega vandað efni því nóg hefur verið af hinu slaka hjá veitunni hin síðustu ár.

Benedict Cumberbatch er þekktastur þeirra sem leika í þáttunum og mæðir mikið á honum líkt og fleirum og þá einkum leikkonunni Gaby Hoffmann sem leikur Cassie, eiginkonu brúðumeistarans. Hoffmann hefur leikið í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda en er þó tiltölulega óþekkt nafn í þeim heimi, hvernig sem stendur nú á því. Hún er engu síðri en Cumberbatch í krefjandi hlutverki konu á barmi taugaáfalls sem upplifir þá martröð að barni

...