„Hún kemur hvað úr hverju“: Hún kemur bráðum, hún fer að koma, hún kemur áður en langt um líður. Í stað hvað úr hverju sést oft og heyrist hvað af hverju

„Hún kemur hvað úr hverju“: Hún kemur bráðum, hún fer að koma, hún kemur áður en langt um líður. Í stað hvað úr hverju sést oft og heyrist hvað af hverju. Það gerir sama gagn. „Ég sagði að hún kæmi hvað af hverju en hann sagði að hún kæmi hvað úr hverju. Þegar hún kom fræddi hún okkur á því að við værum í raun sammála.“