Albanski knattspyrnumaðurinn Armando Broja er á leiðinni til Ipswich á láni frá Chelsea. Enskir miðlar greina frá en Broja er 22 ára gamall framherji sem mun gangast undir læknisskoðun í dag. Ef Ipswich heldur sér uppi í ensku úrvalsdeildinni mun…

Albanski knattspyrnumaðurinn Armando Broja er á leiðinni til Ipswich á láni frá Chelsea. Enskir miðlar greina frá en Broja er 22 ára gamall framherji sem mun gangast undir læknisskoðun í dag. Ef Ipswich heldur sér uppi í ensku úrvalsdeildinni mun félagið greiða Chelsea 30 milljónir punda fyrir framherjann. Ipswich tapaði fyrsta leik sínum í deildinni fyrir Liverpool, 2:0.

Þá verða Raheem Sterling og Ben Chilwell ekki með Chelsea gegn Servette frá Sviss í umspili um sæti í Sambandsdeildinni annað kvöld. Þeir eru báðir sagðir vera á förum frá félaginu en Enzo Maresca þjálfari Chelsea vill losna við Chilwell en er óviss þegar kemur að Sterling.

Körfuknattleiksmennirnir Gunnar Ólafsson og Arnþór Freyr Guðmundsson munu báðir leika með uppeldisfélaginu Fjölni í 1. deildinni á komandi tímabili. Gunnar kemur frá Fryshuset í Svíþjóð þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil

...