100 ára Lilja fæddist 21. ágúst 1924 á Vorsabæjarhóli í Gaulverjabæjarhreppi. Hún ólst þar upp til sex ára aldurs og þaðan lá svo leiðin með fjölskyldunni til Stokkseyrar þar sem hún sleit barnsskónum.

Þegar Lilja var sextán ára urðu mikil kaflaskil, hún missti móður sína og við það urðu miklar breytingar í lífi hennar. Lilja flutti til Reykjavíkur, var hjá föðursystur sinni og fór að vinna við afgreiðslustörf.

Foreldrar hennar voru þau Helga Pálsdóttir, húsmóðir og klæðskeri, f. 30.3. 1896 í Árnessýslu, d. 11.6. 1941, og Guðmundur Guðmundsson, bóndi í Rútsstaða-Norðurkoti í Flóa og trésmiður og verkamaður á Stokkseyri og í Reykjavík, f. 7.3. 1893 í Árnessýslu, d. 7.8. 1983. Bróðir Lilju var Guðmundur Helgi vélstjóri, rafvirki og rafiðnfræðingur í Reykjavík, f. 10.6. 1941, d. 25.3. 2001.

Lilja giftist 7.7. 1945 Ragnari Breiðfjörð Sveinbjörnssyni, matsveini og bryta í Reykjavík, f. 20.6. 1917 í Stykkishólmi, d. 21.7. 1972. Börn þeirra

...