Lögreglan á Austurlandi greindi í gærmorgun frá því að maður á fertugsaldri hefði látist í alvarlegu slysi við Hálslón þá um morguninn. Barst tilkynning um slysið laust fyrir klukkan átta um morguninn og var hinn slasaði úrskurðaður látinn á vettvangi.

Reyndist maðurinn hafa farist af völdum voðaskots, en hann var á gæsaveiðum ásamt fleirum við Hálslón. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi er enginn með stöðu sakbornings og er málið rannsakað sem slys.