Það var um sumt næstum dapurlegt upplitið á mönnum á fyrsta degi landsfundar demókrata í Chicago, sem hófst í fyrradag. Joe Biden forseti var látinn mæta á fyrsta degi, og talaði ekki síst við þau nokkur þúsund atkvæða á þinginu sem bundin voru að…
Joe Biden
Joe Biden

Það var um sumt næstum dapurlegt upplitið á mönnum á fyrsta degi landsfundar demókrata í Chicago, sem hófst í fyrradag. Joe Biden forseti var látinn mæta á fyrsta degi, og talaði ekki síst við þau nokkur þúsund atkvæða á þinginu sem bundin voru að styðja hann í forsetaframboð seinast á þessum sama fundi ef hann vildi.

En enginn slíkur, ekki einn einasti maður, er eða var bundinn því að kjósa Kamölu Harris. Henni fylgdi ekkert atkvæði, þótt hún hefði keppt að slíku eins og fleiri. En þetta var ekki verra veganesti en hún fékk fyrr, þegar hún bauð sig raunverulega fram og fékk ekki neinn fulltrúa bundinn sér.

Chicago er mikil borg og um margt glæsileg, en ekki að öllu leyti fræg helst fyrir það, sem borg vill vera fræg fyrir.

Í tilefni þess að þarna fer mikilvægur fundur upplýstu yfirvöld

...